
29
Tenging við rafmagn
Upplýsingar um rafspennu (málspennu), rafstraum og nauðsynlegt
rafmagnsöryggi er að finna á tegundarspjaldi vélarinnar.
Tegundarspjaldið er staðsett nálægt hurð vélarinnar.
Tenging við vatn
Athugið!
• Þessa vél má ekki tengja við heitt vatn!
• Notið aðeins nýjar slöngur þegar vélin er tengd!
• Tengið vélina aðeins við krana með hreinu (drykkjarhæfu) vatni. Notið
aðeins regnvatn eða endurvinnsluvatn ef það uppfyllir kröfur skv.
staðli DIN1986 og DIN1988
• Gætið þess að aðrennslis- og frárennslisslöngur klemmist eða kremjist
ekki!
Leyfilegur vatnsþrýstingur
Vatnsþrýstingur verður að vera a.m.k. 1bar (=10N/cm
2
=0,1MPa) og má
ekki vera hærri en 10bör (=100N/cm
2
=1MPa).
– Ef þrýstingur er meiri en 10bör: Setjið upp þrýstingslækkunarventil.
– Ef þrýstingur er minni en 1bar: Losið aðrennslisslöngu við
inntakssventil á hlið vélarinnar og fjarlægið rennslisstilli (til þess þarf
að fjarlægja síuna með mjórri töng og taka út gúmmíhringinn sem
liggur á bak við hana). Setjið síuna aftur í.
Kommentare zu diesen Handbüchern