
26
Uppsetning vélarinnar
Flutningur vélarinnar
1 Aðvörun! Þvottavélin er þung. Hætta á slysum! Gætið varúðar þegar
vélinni er lyft.
• Ekki leggja vélina á framhliðina og ekki á hægri hliðina (séð að
framan). Rafmagnshlutir geta blotnað.
• Flytjið vélina aldrei án þess að setja upp flutningsfestingar. Fjarlægið
ekki flutningsfestingarnar fyrr en þar sem vélin er sett upp!
Flutningur án flutningsfestinga getur leitt til skemmda á vélinni.
• Ekki lyfta vélinni með því að grípa hurð dyr hennar eða um sökkulinn.
Þegar vélin er flutt á trillu:
• Setjið trilluna aðeins undir hlið vélarinnar. Burðarteinar trillunnar
mega ekki vera lengri en 24 cm, annars geta vissir hlutir
vatnsvarnarinnar orðið fyrir skemmdum.
Flutningsfestingar fjarlægðar
Athugið! Áður en vélin er tekin í
notkun þarf að fjarlægja allar
flutningsfestingar! Geymið
festingarnar ef skyldi þurfa að flytja
vélina síðar.
1.Losið báðar slöngufestingarnar aftan
á vélinni og takið út slöngur og
rafmagnssnúru.
2.Togið fast í slöngufestingarnar og
fjarlægið þær.
Kommentare zu diesen Handbüchern