
21
Þegar þvotturinn þvæst ekki nógu vel
Þvotturinn er gráleitur og í tromlunni liggur kalk
• Of lítið þvottaefni var sett í vélina.
• Ekki var notuð rétt tegund af þvottaefni.
• Mikil óhreinindi voru ekki meðhöndluð sérstaklega.
• Þvottakerfi eða hitastig var ekki rétt stillt.
Í þvottinum eru gráir blettir
• Þvottur með smyrsli, fitu eða olíu var þveginn með of litlu þvottaefni.
• Þvegið var við of lágt hitastig.
• Algeng orsök er, að mýkingarefni – sérstaklega ef það er ætlað til
þynningar – hafi komist í þvottinn. Þvoið slíka bletti úr eins fljótt og
auðið er, og setjið viðkomandi mýkingarefni varlega í næst.
Enn sést froða eftir að síðustu skolun lýkur
• Nýjar gerðir af þvottaefni freyða stundum einnig í síðustu skolun.
Samt sem áður er þvotturinn nógu vel skolaður.
Hvítar rákir sjást í þvottinum
• Um er að ræða óuppleysanleg efni úr nýjum gerðum þvottaefnis.
Rákirnar stafa ekki af ónógri skolun.
Hristið eða burstið þær úr þvottinum. Hægt er að snúa röngu
þvottarins út næst þegar þvegið er. Farið yfir úrval þvottaefnis.
Ráðlegt er að nota fljótandi þvottaefni fyrir dökkan þvott.
Kommentare zu diesen Handbüchern